Rannsóknarbl... nei niðurrifsblaðamaðurinn er þá svona innrættur !

Er þetta ekki einn af niðurrifsblaðamönnunum sem hafa farið hvað harðast fram gegn fyrirtækjum og fólki undanfarin ár. Ætli aumingja maðurinn að hafi orðið fyrir einhverju ekki góðu í æsku og verði því að fá að njóta vafans þess vegna ? 


mbl.is Klúr skrif beindust einnig gegn börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt skal vera rétt !

Eins og ég las umfjöllun á ensku blöðunum í morgun sagði Coote ekki að Liverpool væri ömurlegt -almennt-. Hann sagði spurður hvað honum hefði fundist um Liverool í leiknum í gær að þeir hefðu verið ömurlegir. Það getur alveg verið að þeir hafi ekki þann dag átt sinn besta leik og því hafi honum þótt þeir ömurlegir í þeim leik, en mér þykir ómögulegt að honum þyki liðið ömurlegt almennt hvað þá að hann segði slíkt. Hitt er það að flestir gera miklar kröfur til Liverool vegna gamalla og nýrra afreka félagsins og því kann lélegur leikur hjá þeim að þykja ömurlegur.  Aftur á móti sagði hann samkvæmt fréttinni ýmislegt miður gott um Klopp sem hann byggir vafalaust á þeirra samskiptum og hefði örugglega betur látið ósagt og örugglega við þennan ágæta "vin" sinn sem sá sér síðan einhvern hag í að leka þessu í fjölmiðla. 


mbl.is Dómarinn settur í bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mig undrar það ekkert !

Mig undrar það ekkert að stúlkan hafi brostið í grát við þessi hroðalegu ótíðindi.

Það er í raun sorglegt að stór hluti bandaríkjamanna séu svo illa á sig komnir að sjá ekki í gegnum allar lygar og illyrmisskap þessa ömurlega karakters, sem hefur á hverjum einasta degi kosningabaráttunnar farið með lygar og rangt mál oftar en tölu verður á komið samkvæmt rannsóknum fjölmiðla þar vestra.

Fyrir nú utan öll þau sakarefni sem hann hefur verið dæmdur fyrir og er sekur um... nauðganir og illt umtal um konur og minnihlutahópa og auðvitað árásina á þinghúsið sem hann bar ábyrgð á að mjög miklu leyt. OG VERA SVO VERÐLAUNAÐUR MEÐ ÞESSUM HÆTTI ER AUÐVITAÐ EKKERT ANNAÐ EN REGIN HNEIKSLI OG SKANDALL.


mbl.is Eva Mattadóttir hágrét eftir sigur Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir þurfa auðvitað ekki að hafa áhyggjur af United !!!!

Þeir kumpánar ættu nú frekar að vera að fjalla um Man United og reyna að finna út úr hvað eiginlega gengur á í iðrum þess vesæla risa. Hvað t.d. er að í heilabúi þeirra sem sjá um leikmannakaup félagsins.

Þeir "hafa varla próf" til að fjalla um Arsenal......


mbl.is „Að horfa á Arsenal eins og að horfa á Netflix“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bara í þágu Hvals hf !

Við Íslendingar eigum ótvíræðan rétt á að veiða hval. Við höfum veitt hval frá ómuna tíð og það hafa fleiri fyrirtæki og einstaklingar gert í tímans rás heldur en bara Hvalur hf.

Hvölum hefur fjölgað mjög mikið á Íslandsmiðum og þeir éta óhemju mikið af t.d. loðnu og öðrum nytjafiski auk fæðu nytjafiskjarins.

Það er því beinlínis nauðsynlegt að fækka hval umtalsvert á Íslandsmiðum t.d. með það í huga að mikilvægur stofn eins og loðnan nái sér á strik á ný.

Það er algjör miskilningur og rangfærsla að hvalveiðar og hvalaskoðun geti ekki farið saman, vel er hægt að skipuleggja veiði-og skoðunarsvæði þannig að ekki þurfi að rekas á.

Og svo skulum við muna að þetta eru veiðar en ekki aflífanir. Aflífanir á dýrum fara fram í sláturhúsum en veiðar úti í náttúrunni og gilda um þær, eðli máls samkvæmt, önnur lögmál.


mbl.is Skora á forsetann að stöðva áform forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEYR ! HEYR !

Orð í tíma töluð og nú eiga allir réttsýnir og vitibornir menn að ganga í að verja Reykjavíkurflugvöll fyrir misvitrum stjórnmálamönnum og fólki sem ekki sér út fyrir skammtímahagsmuni "borgafrinnar". Allt of lengi hefur verið undanlátssemi í gangi Í í þessu máli gagnvart hinum lélegu stjórnendum "borgarinnar" sem ekki hafa komið auga á neitt annað en þéttingu byggðar vegna óstjórnar á fjármálum "borgarinnar".

"VERJUM REYKJAVÍKURFLUGVÖLL"! 


mbl.is „Þarf að verja Reykjavíkurflugvöll fyrir stöðugum árásum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað má ekki gerast aftur ??

Ég vona að maðurinn sé að meina að það megi aldrei gerast aftur að einhver nákominn aðila eða aðilum sem blaðasnápar eru að reyna að koma höggi á sé fengin til að byrla þeim ólyfjan á sjúkrabeði til að stela síðan símanum þeirra og afhenda blaðasnápunum til að stela úr honum gögnum og upplýsingum.  Það vona ég að vesalings maðurinn sé að meina, ef þetta var það sem gerðist á annað borð, ekki veit ég.... og þykir raunar ótrúlegt og trúi vart að svo lágt sé lagst.


mbl.is „Þetta má aldrei gerast aftur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hroðaleg frétt !

Það er naumast að bílstjóranum hefur legið á að komast af stað. Að hann skildi ekki fylgjast með farþega sínum komast klakklaust úr rútunni heldur æða af stað án þess að veita því athygli sem gerðist. Þetta er vítaverð framkoma og athugunarleysi sem hlítur að draga dilk á eftir sér. 

Konunni sem í þessu lenti óskar maður bara góðs og skjóts bata með einlægri von um að ekki hljótist af varanlegt líkamstjón.

Mér er kunnugt um tvö lík atvik sem urðu hjá strætó í Reykjavík.


mbl.is Húðin flett­ist af frá ökkla upp að hné
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessuð sé minning Dóra.

Ég kynntist Dóra svolítið þegar við vorum á Spáni í golfferð fyrir all mörgum árum. Hann setti mjög skemmtilegan svip á ferðina og mætti t.d. með ukulele á teig og spilaði fyrir okkur fjörug stef annað slagið. Eitt kvöldið bauð hann mér og hjónum sem við kynntumst þarna með sér til þorps í nágrenninu og fengum við okkur þar að borða og nutum félagsskaparins fram eftir kvöldi.  Þetta var með skemmtilegri golfferðum sem ég hef farið og ekki síst Dóra að þakka og góðum kynnum við hann og fleiri.

Blessuð sé minning Halldórs Bragasonar, gítarleiara og innileg samúðarkveðja til aðstandenda.

Hjörvar O Jensson. 


mbl.is Halldór Bragason lést í brunanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfitt mál... en.

Eru ekki stjórnvöld að fara að þeim lögum sem um málið gilda ?

Hér hefur fólki árum saman verið synjað um lyf sem því hafa verið lífs nauðsynleg vegna þess að þau þóttu of dýr og yrði of kostnaðarsamt fyrir ríkið/Tryggingastofnun, og hafa þurft að notast við lélegri/vanvirkari lyf.

Ég get ekki séða að ríkið hafi frekar efni á að opna hér óhindraða leið fyrir erlent fólk, e.t.v. komið hingað með ólöglegum hæti, til að komast hér inn í kerfið með erfiða og kostnaðarsama sjúkdóma.


mbl.is „Fólki er almennt mjög misboðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Hjörvar O Jensson

Höfundur

Hjörvar O Jensson
Hjörvar O Jensson

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband