30.10.2024 | 10:02
Þeir þurfa auðvitað ekki að hafa áhyggjur af United !!!!
Þeir kumpánar ættu nú frekar að vera að fjalla um Man United og reyna að finna út úr hvað eiginlega gengur á í iðrum þess vesæla risa. Hvað t.d. er að í heilabúi þeirra sem sjá um leikmannakaup félagsins.
Þeir "hafa varla próf" til að fjalla um Arsenal......
![]() |
Að horfa á Arsenal eins og að horfa á Netflix |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2024 | 09:46
Ekki bara í þágu Hvals hf !
Við Íslendingar eigum ótvíræðan rétt á að veiða hval. Við höfum veitt hval frá ómuna tíð og það hafa fleiri fyrirtæki og einstaklingar gert í tímans rás heldur en bara Hvalur hf.
Hvölum hefur fjölgað mjög mikið á Íslandsmiðum og þeir éta óhemju mikið af t.d. loðnu og öðrum nytjafiski auk fæðu nytjafiskjarins.
Það er því beinlínis nauðsynlegt að fækka hval umtalsvert á Íslandsmiðum t.d. með það í huga að mikilvægur stofn eins og loðnan nái sér á strik á ný.
Það er algjör miskilningur og rangfærsla að hvalveiðar og hvalaskoðun geti ekki farið saman, vel er hægt að skipuleggja veiði-og skoðunarsvæði þannig að ekki þurfi að rekas á.
Og svo skulum við muna að þetta eru veiðar en ekki aflífanir. Aflífanir á dýrum fara fram í sláturhúsum en veiðar úti í náttúrunni og gilda um þær, eðli máls samkvæmt, önnur lögmál.
![]() |
Skora á forsetann að stöðva áform forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2024 | 16:44
HEYR ! HEYR !
Orð í tíma töluð og nú eiga allir réttsýnir og vitibornir menn að ganga í að verja Reykjavíkurflugvöll fyrir misvitrum stjórnmálamönnum og fólki sem ekki sér út fyrir skammtímahagsmuni "borgafrinnar". Allt of lengi hefur verið undanlátssemi í gangi Í í þessu máli gagnvart hinum lélegu stjórnendum "borgarinnar" sem ekki hafa komið auga á neitt annað en þéttingu byggðar vegna óstjórnar á fjármálum "borgarinnar".
"VERJUM REYKJAVÍKURFLUGVÖLL"!
![]() |
Þarf að verja Reykjavíkurflugvöll fyrir stöðugum árásum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2024 | 16:16
Hvað má ekki gerast aftur ??
Ég vona að maðurinn sé að meina að það megi aldrei gerast aftur að einhver nákominn aðila eða aðilum sem blaðasnápar eru að reyna að koma höggi á sé fengin til að byrla þeim ólyfjan á sjúkrabeði til að stela síðan símanum þeirra og afhenda blaðasnápunum til að stela úr honum gögnum og upplýsingum. Það vona ég að vesalings maðurinn sé að meina, ef þetta var það sem gerðist á annað borð, ekki veit ég.... og þykir raunar ótrúlegt og trúi vart að svo lágt sé lagst.
![]() |
Þetta má aldrei gerast aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.8.2024 | 19:58
Hroðaleg frétt !
Það er naumast að bílstjóranum hefur legið á að komast af stað. Að hann skildi ekki fylgjast með farþega sínum komast klakklaust úr rútunni heldur æða af stað án þess að veita því athygli sem gerðist. Þetta er vítaverð framkoma og athugunarleysi sem hlítur að draga dilk á eftir sér.
Konunni sem í þessu lenti óskar maður bara góðs og skjóts bata með einlægri von um að ekki hljótist af varanlegt líkamstjón.
Mér er kunnugt um tvö lík atvik sem urðu hjá strætó í Reykjavík.
![]() |
Húðin flettist af frá ökkla upp að hné |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2024 | 18:18
Blessuð sé minning Dóra.
Ég kynntist Dóra svolítið þegar við vorum á Spáni í golfferð fyrir all mörgum árum. Hann setti mjög skemmtilegan svip á ferðina og mætti t.d. með ukulele á teig og spilaði fyrir okkur fjörug stef annað slagið. Eitt kvöldið bauð hann mér og hjónum sem við kynntumst þarna með sér til þorps í nágrenninu og fengum við okkur þar að borða og nutum félagsskaparins fram eftir kvöldi. Þetta var með skemmtilegri golfferðum sem ég hef farið og ekki síst Dóra að þakka og góðum kynnum við hann og fleiri.
Blessuð sé minning Halldórs Bragasonar, gítarleiara og innileg samúðarkveðja til aðstandenda.
Hjörvar O Jensson.
![]() |
Halldór Bragason lést í brunanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2024 | 09:28
Erfitt mál... en.
Eru ekki stjórnvöld að fara að þeim lögum sem um málið gilda ?
Hér hefur fólki árum saman verið synjað um lyf sem því hafa verið lífs nauðsynleg vegna þess að þau þóttu of dýr og yrði of kostnaðarsamt fyrir ríkið/Tryggingastofnun, og hafa þurft að notast við lélegri/vanvirkari lyf.
Ég get ekki séða að ríkið hafi frekar efni á að opna hér óhindraða leið fyrir erlent fólk, e.t.v. komið hingað með ólöglegum hæti, til að komast hér inn í kerfið með erfiða og kostnaðarsama sjúkdóma.
![]() |
Fólki er almennt mjög misboðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2024 | 08:59
MEÐ EINDÆMUM !
Þetta er alveg með eindæmum lélegt hjá bæjarfélaginu sem fékk upp í hendurnar alveg ÓTRÚLEGAN pakka með samkomulaginu við Róbert á sínum tíma. hann virðist gafa staðið mjög vel við sitt en enn stendur upp á að efna sín loforð gefin honum 2012.
![]() |
Bæjaryfirvöld ekki staðið við samkomulag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2024 | 08:18
Mikið var að beljan bar !
Það var mikið að menn vöknuðu og tækju til sinna ráða gagnvart þessu glæpahyski sem hingað er komið öllu samfélaginu til hrellingar.
Í fyrsta laggi þarf að vera aðstaða á Kevl.flugvelli til að hýsa þá sem hingað koma skilríkjalausir og senda þá burt umsvifalaust með næstu vél til sama áfangastaðar. Þessu liði á ekki að hleypa inn í landið sem ekki hefur skilríki við komuna.
Higað hafa komið skipulagðir flokkar innbrotsmanna og er nú eitt frægasta dæmið um þá sem ætluðu inn í Fljótshlíðina um árið til að ræna bæi og eignir fólks sem þurfti að ríma sveitina vegna hættu á flóðöldu frá gosinu.
Burt með þetta hyski allt saman með endurkomubanni til landsins.
![]() |
72 erlendum brotamönnum vísað á brott |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2024 | 08:55
Frábært VESTRI
Til hamingju Vestri. Þetta afrekaði Austri frá Eskifirði árið 1978 þegar þeir og KR voru í annari deld. Þá gerðu KR-Austri 3-3 jafntefli á Melavellinum gamla og var staðan 0-3 í hálfleik Austra í vil. Þjálfara KR og KR-ingum öllum þótti þetta örugglega mjög súrt þá og þykir það örugglega nú líka.
Áfram VESTRI !
![]() |
Verðum að klára leikinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hjörvar O Jensson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 15
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 194
- Frá upphafi: 5680
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 167
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar