29.1.2025 | 16:57
Sjálfshól sem minnir á skipbrotið mikkla !
Þessi grein, um að Ísland hafi alla burði til að verða miðstöð "fjártækni" á alþjóavísu, minnir óneitanlega á þá daga þegar íslenskir bankastjórnendur töldu sér, stjórnvöldum og mörgum öðrum trú um að þeir væru mestu bankasnillingar þess tíma á alþjóðavísu. Allt endaði það brölt með hrikalegu hruni allra viðskiptabankanna í landinu og urðu nær endalok sparisjóðakerfisins einnig.
Undirritaður starfaði þá sem útibússtjóri hjá stærsta bankanum og sat margan fundinn þar sem fram fór heilaþvottur um ágæti allrar þeirrar útrásar sem fyrirhuguð var og framkvæmd var í framhaldinu. Við sem eldri vorum í starfi höfðum auðvitað engin áhrif á framrásina og vorum óvirkir þátttakendur. En oft litum við hver á annan og hristum höfuðið og sendum hver öðrum augnaráð sem ekki var unnt að misskilja. Allt hófst þetta óheillaferli með svo kallaðri einkavæðingu/heffingu Landsbanka Íslands og sölu hans til vankunnandi lukkuriddara.
Talandi um sumt af efni þessarar greinar t.d. það að tæknin öll hafi lækkað kostnað bankanna og bætt þjónustu við viðskiptavinina má spyrja, hvers vegna lækka þá ekki bankarnir útlánsvexti sína og gjaldskrár viðskiptavinunum til hagsbóta. Og varla telst það til bættrar þjónustu við eldri viðskiptavini, sem vilja eiga persónuleg samskipti við bankann sinn, að loka í röðum útibúum bæði hér syðra og ekki síður úti á landi.
Góða ferð og vonandi endar þessi leiðangur betur en hjá lukkuriddurunum forðum daga.
Stöndum framarlega í fjártækni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hjörvar O Jensson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 18
- Sl. sólarhring: 50
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 5087
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning